Colin A. Ross, MD

Colin A. Ross nam læknisfræði og síðan geðlæknisfræði í heimalandi sínu, Kanada.

Hann varð fljótlega ósáttur við prófessorana í geðlæknisfræði, sem honum fannst kenna sér fátt
og sem sinntu sjúklingum sjaldan og lítið ef frá er talin lyfjagöf. Jafnframt var hann ósáttur við skipulag geðlækninga almennt.

Ross flutti til Texas um 1990 og hefur þar stjórnað geðspítölum og unnið að rannsóknum
Hann hefur skirfað fjölda bóka. Þar á meðal þessar tvær:


Hægt er að smella á myndirnar til að fara á Amazon þar sem þær eru til í Kindle útgáfu og stundum í prentútgáfu.
Hægt er að kaupa allar bækur Colin A. Ross beint frá Manitou Communications.
Bækurnar tvær hér að neðan fást oftast hjá Dáleiðsluskóla Íslands

Ég mæli með að lesa fyrst "The Great Psychiatry Scam" og síðan "The Trauma Model"

                 

The American Psychiatry Association gefur út handbók um geðsjúkdóma og aðra andlega kvilla
á nokkurra ára fresti sem inniheldur lýsingu, greiningu og ráðleggingar til fagaðila

Nýjasta útgáfan er DSM-5, sem gefin var út 2013.
Í bókinni "The Trauma Model" vísar Colin A. Ross mjög í næstu útgáfu á undan, DSM-4-TR

Fyrir þá sem lesa bókina og vilja fletta upp í
Diagnostic And Stastical Manual Of Mental Disorders, er hér linkur á DSM-4 auk DSM 5

                  


Hér að neðan eru tveir fyrirlestrar þar sem Colin A. Ross, MD ræðir sérfræðiþekkingu sína

Í öðru myndbandinu talar hann um áföll og afleiðingar þeirra en skoðanir hans fara oft ekki saman
við gildandi skoðanir. Hann telur áföll ástæðu flestra geðsjúkdóma og andlegrar vanlíðunar
Algengast er að geðlæknar telji að flestir geðsjúkdómar orsakist fyrst og fremst af genagöllum eða stökkbreytingum

Í hinu myndbandinu fjallar hann um DID (Dissociative Identity Disorder sem áður kallaðist Multiple Personality Disorder)
Margir geðlæknar halda því fram að DID sé ekki til eða sé iatrogenic (skapað af læknum)
Í fyrirlestrinum hrekur Ross þessar kenningar



Speaking on Trauma At Aquinas College


Extreme Skeptics About DID Why They Are Wrong
DID= Dissociative identity disorder (previously known as multiple personality disorder)




Hugræn endurforritun sf           Sími: 835 5600          netfang: skolinn@daleidsla.is